Á vallarsvæðinu, í húsi Listamiðstöðvarinnar er búið að setja upp ágætis sýningaraðstöðu / gallery. Salurinn er nokkuð stór og með heila veggi. Þar má gera hvað sem er. Ekki bannað að negla, mála og sulla ! Í húsinu er m.a ljósmyndafélagið með aðstöðu, höggmyndarar, námskeiðs og vinnustofur myndlistafólks, tölvuskólinn og kvennakór Suðurnesja. Í næsta nágrenni er m.a veitingahúsið Langbest og Samkaup. Á vallarsvæðinu búa um 2-3000þ manns.
Engin leiga er tekin fyrir sýningar. Sýnendur sjá sjálfir um uppsetningu.
Galleryið sér um kynningar og boðskort í samráði við listamann.
Hver sýning stendur í 3 vikur ( fimmtudag - fimmtudag ).
Upplýsingar og umsókn sendist til 1og8@1og8.com
 

 




HOME