09.02 2009
Hefur sent inn kæru vegna úthlutunnar listamannalauna.
Guðmundur hefur sent Stjórn listamannalauna ásamt umboðsmanni alþingis og menntamálaráðherra ósk um rökstuðning á synjun starfslauna. Þegar úthlutannir til margra ára  koma til skoðunnar má sjá að oft er verið að úthluta til fólks sem nánast varla kemur að list eða hefur fengið úthlutað ár eftir ár. Geta má þess að á 18 ára starfsferli Guðmundar í myndlist , hefur hann ekki einu sinni hlotið 3 mánuði þótt starfsferill hans hafi verið óslitin allan þann tíma og sýnt m.a í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarborg , Nýlistasafninu og í stórum og viðurkenndum söfnum erlendis sem og fjöldan af gallerýum heima og erlendis. Frekari umfjöllun verður um þetta mál hér síðar.

Það hefur vakið ath. margra sem slegið hafa inn nöfn á leitarvef veraldarvefsins, þeirra margra sem úthlutun fengu þetta árið, hversu oft viðkomendur virðast nátengdir Kling&bang. Það skildi þó ekki vera að um hagsmunatengsl séu þarna að ræða, vonandi ekki, en óneitanlega er það afar sérkennilegt svo vægt sé til orða tekið að svo sé.

Það er alveg orðið ljóst að koma þarf á punktakerfi sem farið verður eftir við úthlutanir og gamla úrelta og ósanngjarna "klíku" kerfið lagt niður þegar að úthlutun starfslauna kemur. Það er líka alveg ljóst að það þarf að krefjast þess að nefndirnar fari eftir lögum og reglum ( stjórnsýslu ), og láti rökstuðning fylgja þegar um höfnun er að ræða.

Til baka