Gamlar myndir frá Trúbidora tímabilinu og fleiri uppákomum.


Þessi mynd er tekin um ca.1973 á tónleikum sem haldnir voru í Bíóhöllinni Akranesi. Sveinbjörn Oddson á
bassa, á bakvið Guðmund er Diddi / Kristján Einarsson
á trommur. Frumsamið efni eftir Guðmund í fluttningi.


Hér eru myndir af Sveinbirni og Guðmundi á tónleikunum.


Þessi mynd er tekin á Vagninum Flateyri 1992.
Á banjoið er
Sigurður Friðrik, hálfbróðir Guðmundar.


Þessi mynd er tekin á veitingastaðnum Fógetanum í RVK,
og á " BALABASSA" er Dean, sem leikur með íslensku
sinfóíunni en er hér að spila á ár með steng stektan í
venjulegan gamlan járn þvottabala.


Þessi mynd er tekin á tónleikum á Fógetanum. Takið
eftir sviðsmyndinni, en stundum var Guðmundur með
all furðulega sviðsmynd í kring um sig án þess að gestir
tækju neitt sérstaklega eftir því.


Þessi mynd er tekin á Seyðisfirði í kringum 1978 á skemmtun hjá JC Seyðisfirði. Hér er örugglega verið að frumflytja "Súrmjólkina" . Á myndinni eru f.v ; Sveinn Valgeirsson, Bjartmar Guðlaugsson, Bjarni Bærings og Guðmundur R á gítarinn.

 

 

HEIM