|
News 2009;
Gudmundur will have Conset, art exhibition and 20 m long water sculpture in the Cultur festival " Light night 2009 ". 35 mucicians will perform and play with him. All musics are composed by Gudmundur R.
Gudmundur invited to exhibit in the Art Museum of Reykjanesby 2010.
Video news from the exhibition in Art Domain Gallery 2009
New works 2009 "The navy is gone "
"Crisis 2009"
My atalier / Studio
Drain graphic in Leipzig, Dresten and Berlin 2009. View
Grand tour and exhibition Leipzig - april 2009. View
"Art with out border "
07.03 2009 - New song: ( Hlusta )
Ludviksson teach and makes art works with the students.
04.03 2009 "HEIMÞRÁ" New Exhibition in Hitaveitu Sudurnesja Reykjanesby.
New song (24 feb. 2009 ) Mynd i hjarta ber
Gudmundur & Daniel work to gether on exhibition and new works for HS
Gudmundur takes part in the Landfillart Project in USA. It is the largest global art project ever achieved. Ken Marquis www.landfillart.org
AWARDS 2008 Ludviksson is awarded to Palm Art Award 2008 Merit Award
Consert with G R Ludviksson Many of the best jazz players in Iceland perform with him. Only his music´s.

AWARDS 2008 500.000.- Kr from the Art culture foundation of Reykjanes for his sculpture Northen light towers.
Gudmundur in the Icelandic radio talk. |
Fréttir 2009; Eldri fréttir
|
 Hluti af hópnum sem tekur þátt í vinnustofutónleikunum. Sjá betri myndir >>>
Vinnustofu Stórtónleikar og útilistaverk á Ljósanótt 2009. Guðmundur mun verða með stórtónleika fimmtudaginn 03. september 2009, í tilefni af Ljósanótt. Með honum munu leika um 35 manns, þar á meðal Kvennakór Suðurnesja. Hljómsveitin verður skipuð mörgum af helstu tónlistar mönnum Suðurnesja, má þar nefna Steinar Guðmundsson á píanó, Marinó Már Magnússon á trommur, Ágúst Ingvarsson á slagverk, Sveinn Björgvinsson á gítar, Kjartan Már Kjartansson á fiðlu, Sigurður Jónsson á harmonikku, Páll E Pálsson á kontrabassa og rafbassa, Hlöðver S Guðnason á mandólín og gítara, Guðmundur Símonarson á gítara ofl og fl ofl. Tónleikarnir fara fram á vinnustofu Guðmundar þar sem gestum gefst einnig færi á að skoða ýmis verk eftir hann.
Jafnframt mun Guðmundur verða með 12 metra langt vatnsverk sem kallast " Ljósbrot " á Ljósanótt sem staðsett verður við garðinn hjá bátnum Baldri, rétt hjá Pakkhúsinu.
|
Nýr 13 laga diskur í tilefni af Ljósanótt 2009. Tilbúinn er nýr CD sem inniheldur 13 lög, öll eftir Guðmund R . Nokkrum nýjum og nokkrum eldri lögum. Þeir sem áhuga hafa á að eignast diskinn geta sent mail og verður hann þá sendur viðkomandi. Verð á disknum er aðeins 1.000.-kr. Sjá má nánari upplýsingar HÉR.
| Guðmundur sýnir í Listasafni Reykjanesbæjar á Ljósanótt 2010. Á árinu 2010 verður 20 ára starfsafmæli Guðmundar sem starfandi myndlistarmanns. Gera má ráð fyrir að Guðmundur muni leggja mikið undir þetta ár og vera með viðamikla sýningu - jafnvel tvær. En Listráð Listasafns Reykjanesbæjar ákvað á fundi sínum 7. maí 2009 að bjóða Guðmundi að sýna í Listasal Duushúsa á Ljósanótt 2010.
Hér má sjá sjónvarpsfrétt af sýningunni í Leipzig Þýskalandi 2009
Sýning í USA Alþjóðleg myndlistasýning þar sem um 47 lönd taka þátt í þ.m.t Ísland ( Guðmundur R ) opnar í Pennsylvania. Öll verkin eru unnin á hjólkoppa sem fundist hafa við þjóðvegi í hverju landi. Sjá myndir >>>
 Crisis verk á leið á erlenda sýningu .
 Verkið " Fuglaþúfur " í undirbúningi fyrir sýningu Ljósanótt 2009.
Nokkrar skissur ! Hér eur nokkrar skissur sem gerðar voru í Leipzig, þegar hugurinn reikaði á heimaslóðir. "Homesick" SJÁ MYNDIR <<<
Sýningin "Glerborgir" opnaði í Dushúsum Bíósal á Sumardaginn fyrsta. Mikill fjöldi mætti á opnun og var almenn ánægja með sýninguna.SJÁ MYNDIR <<<
Dagblað í Leipzig Þýskalandi birtir og fjallar um þátttöku Guðmundar, Daníels og Hermanns , sem nú stendur yfir í Art Domain Gallerý SJÁ GREININA <<<
List án landamæra Listsýning undir handleiðslu Guðmundar R, opnar 23. april í Dushúsum Bíósal . Á sýningunni eru ýmis verk ásamt einu verki / innsetningu sem kallast " Glerborgin ".
Slor og skítur enduútgefið Lag Guðmundar R, Slor og skítur, sem út kom 1983 í kvikmyndinni Nýtt líf verður sigur söngur knattspyrnumanna í Eyjum, en ný útgáfa á laginu var tekin upp í einu fullkomnasta og flottasta stúdíói landsmanna úti í Eyjum. Lagið er þrautseigt því meðal annara hefur Björk Guðmunds sungið lagið, hljómsveitin Á móti sól gaf það einnig úr á sínum tíma og nú verða það sigur glaðir Vestmannaeyingar sem munu syngja það á knattleikjum í sumar. Sjá myndir úr fréttatíma RÚV >>>
Verk á 3 sýningar í undirbúningi Vinnur að verkum fyrir 3 mismunandi sýningar: Hér má sjá myndir. " Herinn er burt ">>> " Tíðarandinn 2009 " >>>
Vinnustofan. Sjá myndir >>>
Fullbókað í næsta námskeið. Nýtt námskeið hefst í næstu viku og er það löngu fullbókað. Námskeiðið kallast Inni - Úti og er ætlað meira byrjendum eða þeim sem vilja vinna með raunsætt myndmótíf. Farið verður í dagsferð á námskeiðstímanum til að viða að sér efni. Nánari upplýsingar eru hjá MSS.
Vann og sýndi með börnum í Leipzig. Laugardaginn 4. apríl var opnuð sýning á verkum sem GRL vann í samstarfi með Kinder Kunst Schule " Goldfich " í Leipzig. Sjá myndir >>>
SPINNEREI Heimsóttum gamla spunaverksmiðju í Leipzig sem nú er listamannamiðstöð, þar sem yfir 100 listamenn hafa vinnuaðstöðu ásamt frábærum galleríum, verslun og veitingastað. Verksmiðjan var áður spunaverksmiðja og var lengi vel sú allra stærsta í Evrópu. Sjá myndir >>>
Frábær ferð til Leipzig Á mánudag lauk ferð sem við fórum til Leipzig með sýningu. Einnig var Dresten og Berlín heimsótt.Sjá nánar >>>
Í viðtali við Þýska sjónvarpsstöð. Sjá mynd >>>
Sýnir verk í Búlgaríu Guðmundur sýnir nú nokkur verk í Sofíu í Búlgaríu. Verkin eru unnin á og úr Morgunblaðinu. Sjá myndir >>>
Lagt af stað til Berlínar á mánudag. Næstkomandi mánudag verður flogið til Berlínar og þaðan ekið til Leipzig. En föstudaginn 3. apríl opnar þar sýning sem Guðmundur tekur þátt í. Þetta er þriðja sýning Guðmundar í þessu galleríi. Einnig mun Guðmundur vinna með börnum að annari sýningu, en hann hefur unnið með teikningar frá þessum börnum í þeim verkum sem hann sýnir að þessu sinni.
Landfillart USA: Verkið sem fer til Bandaríkjanna vegna sýningar þar er nú tilbúið. Eins og fram kom hér áður á síðunni tekur Guðmundur þátt í alþjóðlegri sýningu á verkum sem unnin eru á hjólkoppa sem fundist hafa við Þjóðvegi og þeim umbreitt í myndlistaverk. Sjá stærri mynd>>>
Guðmundi boðið að taka að sér menningaþátt fyrir sjónvarp. Í skoðun er nú hjá einni sjónvarpsstöð að Guðmundur taki að sé að stýra menningarþætti fyrir eina ónefnda sjónvarpsstöð. Málið ætti að skírast um helgina en þá verður þetta ljóst þar sem samningar og frekari útfærsla er í gangi. Þættirnir munu þjóna öllu landinu utan Rvk svæðisins.
Gamlar myndir. Hér eru gamlar myndir frá Trúbadora tímabilinu. Er að safna þeim saman.SKOÐA
Nýtt námskeiðhefst 16.04 Allt milli himins og jarðar Nýtt námskeið hefst á vegum Félags myndlistarmanna í Reykjanesbæ. Leiðbeinandi: Guðmundur R
Vegleg bók gefin út . Á síðasta ári tók Guðmundur þátt í sýningu í Sofia í Búlgaríu ásamt fjölda annara erlendra listamanna. Í tilefni af sýningu þessari hefur verið gefin út vegleg bók með öllum verkunum sem á sýningunni voru. Þess má geta að Guðmundur verður einnig með verk á sýningu sem fram fer á þessu ári á sama stað. Að þessu sinni munu verk hans fjalla um og sýna " forsíður Morgunblaðsins og kreppan á Íslandi " . Sjá hér 4 síður úr bókinni. >>>>
Súputeningurinn kominn út á CD. Búið er að endurgera Súputeninginn sem kom út á cassettu 1993 og er samvinnuverk Bjarna Þórarinssonar og Guðmundar R. Diskur þessi er all sérstakur.
List án landamæra. Nú stendur yfir "work shop" í Svarta Pakkhúsinu þar sem Guðmundur vinnur með Hæfingarstöðinni og Björginni, að verki og sýningu sem opnuð verður Sumardaginn fyrsta í Dushúsi. Sjá myndir
Bréf frá "67kemur í leitirnar. All sérstakt handskrifað bréf frá föður mínum kemur í leitirnar. Skoða
07.03 2009 -Nýtt lag og ljóð fæddist í dag. Ástin er undarleg ( Hlusta ) Textinn er hér: Myndin er af Birtu Gísladóttir / Afadóttir
|